Saturday, February 11, 2006
Halló halló, ég er komin með nýja síðu og setjið slóðina í favorites hanppinn, er að reyna að flytja albúmin yfir.
http://www.123.is/johannakh
Posted at Saturday, February 11, 2006 by
johannakh
Permalink
Wednesday, February 08, 2006
Í gærkvöldi var stofnað Foreldrafélag GF með formlegum hætti og á undirbúningsnefndin miklar þakkir fyrir, boðið var upp á kaffi og nýbakaðar kleinur, frábært.
Í kvöld er svo Frönsku daga fundur og rætt um hvað skuli gera, hvernig, hvurs og hver??????
Hlakka til að Idolsins á föstudagskvöld bæði því Idolið er skemmtilegt og líka notaleg stund með fjölskyldunni og snakkinu.....;-) Það er að koma loðna í kvöld og kannski á bara að frysta á morgun, jibbý jey.
Hafið það gott krúttin mín.
Posted at Wednesday, February 08, 2006 by
johannakh
Permalink
Monday, February 06, 2006
Ég er eins og Ragnar Reykás, ég hef verið að signa mig inn á slattan af bloggsíðum en líst stundum á og stundum ekki á neina, ég er að vonast til þess að búið sé að uppfæra blogdrive svo að ekki komi til að hún loki svona aftur.
Eftir vinnu ætlaði ég að fara að hjóla en nennti því ekki, nennti ekki í salinn og ekki heldur út að hlaupa æi....það er svo leiðinlegt þegar svona kemur yfir mann.
Fundur í kvöld hjá foreldrum 4. og 5. flokki kvenna út af Goðamótinu, auðvitað mætir maður í Bogann.
Stofnfundur Foreldrafélags GF annaðkvöld kl: 20, allir að mæta á svæðið.
Svo er fundur vegna Frönsku helgarinnar á miðvikudagskvöldið, nóg að gera.
Nú ætla ég að fara að borða og svo á fund og ég var að vona að ég næði framhaldsmynd mánaðarins á stöð 2 í kvöld, seinni þáttur mjög spennandi.
Knús til ykkar.
Posted at Monday, February 06, 2006 by
johannakh
Permalink
Sunday, February 05, 2006
Tóta skoraði á mig og það er best að standa sig.
Fjögur störf sem ég hef unnið:
1. Fiskvinnsla
2. Verslunarstörf
3. Dagmóðir
4. Kennari
Fjórir staðir sem ég hef búið á..úps.
1. Fáskrúðsfjörður
2. Reykjavík
3. Austurbyggð
4. Bráðum Fjarðarbyggðar
Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla:
1. Nágrannar
2. 24
3. Numbers
4. Idol
Fjórir staðir sem ég hef ferðat til í fríi:
1. Spánn
2. Holland
3. Edinborg
4. Vestfirðir að hluta.
Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega:
1. austurbyggd.is
2. johannakh.blogdrive.com
3. gf.is
4. mbl.is
Fjórar uppáhaldsmatartegundir:
1. Hrossabollur
2. Lambalæri
3. Fiskisúpan mín
4. Kjúklingur
Fjórir cd sem ég gæti ekki verið án:
1. Tina Turner
2. Bon Jovi
3. Heitar lummur
4. Sálin
Nú skora ég á Telmu Ýr, Heiðrúnu Ósk, Tinnu Hrönn og Ástu frænku.
Posted at Sunday, February 05, 2006 by
johannakh
Permalink
Í gær var 6. flokks mót í fótbolta í íþróttahúsinu hér á Fáskrúðsfirði, um 10 lið vorum mætt til leiks af héðan að austan, alls 90 keppendur. Þetta var frábært mót allir skemmtu sér konunglega og stóðu sig eins og hetjur. Allir fóru út sem sigurvegarar með pening og svala í farteskinu. Kanttspyrnudeildin var með fjáröflun á meðan á mótinu stóð, Steina og ég bökuðum vöfflur ofan í mannskapinn og voru allir ánægðir, allir verða að hafa hlutverk á svona degi.
Svo fór kvöldið í það að borða snakk og horfa á imbakassann.
En nú er kominn nýr dagur og sýnist mér veðrið vera með besta móti en lyktin er ekki eins og ég hefði viljað hafa hana......ok bræðslufýlan er eins og undanfarna daga en nú var Reynir að kveikja upp hjá sér niður á Hilmir og það er ekki góð lykt.
Ég er að leyta mér að góðri bloggsíðu, það er svo oft sem ekki er hægt að komast inn á þessa. Það verður að vera hægt að breyta útlitinu, setja inn banner, setja myndir á forsíðuna og ég verð að hafa hana eins og ég vil. Getið þið bent mér á einhverja??? ÞHelga þú varst með slóð á einni sam þú gafst mér en ég týndi, dönsk eða hvað???
Hilsen
Posted at Sunday, February 05, 2006 by
johannakh
Permalink
Friday, February 03, 2006
Ég var að horfa á Idolið eins og flestir aðrir, þetta var alveg magnaður þáttur, þau eru öll að standa sig svo vel, ég var spennt að sjá hippaþemað, hefði vilja sjá einhvern í síðri rósóttri mussu og með síðar litaðar fléttur í hárinu en annars flott. Á eftir kemur svo í ljós hver dettur út, ég er voða hrædd um að það verði Tinna en það er ekki víst.
Við Steina skruppum seinni partinn á Reyðarfjörð til að versla hitt og þetta, aðallega þetta. Á morgun er fótboltamót hjá 6. flokki og munu mörg lið koma og keppa, við ætlum að selja vöfflur og vera með drykki, hlakka til að sjá ykkur.
Bið að heilsa ykkur í kvöld.
Bless bless.
Posted at Friday, February 03, 2006 by
johannakh
Permalink
Wednesday, February 01, 2006
Var að koma af fundi sem fjölluðu um Franska daga 2006 og var mjög gaman, mikið spjallað og mikið hlegið og auðvitað drukkið kaffi í hófi. Já ekki veitir af að nýta tímann því allt í einu verður komið sumar, það minnir mig á það að ef við ætlum einhver að hjóla frá Rvk í sumar veitir ekki af að fara að skipuleggja það, tala við Guðbjörn fljótlega en svo kannski nennir því enginn.
Annars hefur verið nóg að gera í vinnunni, alltaf fjör þar og svo er ég ða glíma við forrit sem ég átti að búa til alein, þóttist ógurlega klár og skellti mér út í forrit sem fjallar um rúmfræði en það komu bara villur í ljós, bíð eftir smá leiðbeiningum frá kennaranum og svo kemur Pétur heim um helgina og hjálpar mömmu sinni.
Íþróttadagur á morgun hjá Miðstigi og Unglingastigi og verður keppt í hinum ýmsu greinum s.s. pönnukökubakstri, bandý, blaki, skák, krossgátu, spurningakeppni, olsen olsen ......svo má lengi telja.
Góða nótt dúllurnar mínar.
Posted at Wednesday, February 01, 2006 by
johannakh
Permalink
Tuesday, January 31, 2006
Hún elskulega Steina frá Dölum á afmæli í dag og vil ég óska henni til hamingju með daginn, þín var sárt saknað í blakinu í kvöld en þú kemur bara næst.
Mynd tekin á hjónaballinu sl. en eins og þið sjáið þá er Steinunn bæði með regnhlíf og sólgleraugu, reyndar heldur hún á sólgleraugunum.
Posted at Tuesday, January 31, 2006 by
johannakh
Permalink
....þegar ég fer inn á síðuna mína hér heima þá kemst ég ekki inn, þetta er æ oftar að gerast og ég finn ekkert kvörtunarnetfang hjá blogdrive.com, veit einhver hvers vegna þetta gerist, það kemur alltaf bara speedtouch nafnið á routernum mínum, en ég kemst allt annað á vefnum.
Posted at Tuesday, January 31, 2006 by
johannakh
Permalink
Monday, January 30, 2006
Fyrir þá sem ekki vita en þá eru blaktímarnir hjá okkur konunum opnir öllum, því fleiri sem mæta því betra og skemmtilegra, við erum svo mikið fyrir fjörið.
Knús til allra.

Posted at Monday, January 30, 2006 by
johannakh
Permalink